Jæja þá er bara allt að gerast, við erum orðin um 80 manns sem
munum hittast á ættarmótinu. Þetta er alveg frábært, það er allt á
fullu núna að skipuleggja hvar við munum vera á föstudagskvöldinu.
Það er því miður spáð rigningu á föstudagskvöldinu svo að við erum
að vinna í því að finna stað þar sem hægt verður að borða inni því
skátastykkið rúmar ekki okkur öllsömul inni ef veður verður
eitthvað leiðinlegt. Ég set inn frétt um þetta um leið og það
er komið á hreint.
Ég vil minna á að þeir sem eru að koma með Herjólfi
geta kynnt sér einingakerfið en það er mun ódýrara
en að borga farið beint með peningum. Hægt er að skoða þetta á
heimasíðu Herjólfs: http://www.eimskip.is/DesktopDefault.aspx/tabid-378/
Eitthvað hefur minnkað um að fólk ætli að vera í tjaldi,
einhverjir hafa komið sér fyrir í leiguíbúðum eða í heimahúsum. Svo
að það stefnir í að þeir sem verði í tjaldi, tjaldi bara á
tjaldstæðinu inni í dal.
Verið er að klára að setja saman smá dagskrá fyrir
laugardaginn en planið þá er að fara í smá gönguferð en
það verður hægt að fara hana einnig á bíl fyrir þá sem ekki treysta
sér í gönguferð.
Í gönguferðinni var hugmyndin að byrja uppi í kirkjugarði, ganga
að uppgreftinum þar sem verið er að grafa upp húsin sem fóru
undir í gosinu, ganga síðan þangað sem Hruni var en búið er að
rífa húsið sjálft og enda síðan jafnvel í spröngunni. Þetta er
bara svona hugmynd sem verið er að vinna með en að sjálfsögðu
fer þetta allt pínulítið eftir veðri líka. Annars er það bara
regnhlífin og góða skapið
það er ekkert sem stoppar Hrunafólkið

Jæja læt þetta duga í bili, hlakka mikið til að hitta ykkur um
helgina.
Björk Guðna.